16 maí 2007Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Átján ára landsliðið stelpna hefur ekki leik fyrr en á morgun en spilar þess í stað tvo leiki á fyrsta degi. Mótherjar íslenska liðsins á fyrsta degi er ekki af verri endanum en stelpurnar mæta Svíum klukkan 10.30 og svo Finnum klukkan 18.30 en þessar þjóðir spiluðu úrslitaleik fyrir tveimur árum þegar þessar stelpur voru í 16 ára landsliðunum. Heimasíðan kynnir hér þá tólf leikmenn sem skipa liðið að þessu sinni. Þessar stelpur enduðu í fjórða sæti þegar 1989-árgangurinn lék sem 16 ára lið á Norðurlandamótinu fyrir tveimur árum. Íslensku stelpurnar unnu þá Noreg en töpuðu fyrir Dönum í leiknum um þriðja sætið. Leikmenn liðsins koma frá fjórum félögum þar af koma níu leikmenn frá tveimur félögum. Haukar eiga flesta leikmenn eða fimm en fjórar stelpur koma frá Grindavík. Hamar úr Hveragerði á síðan tvo leikmenn og Keflavík á einn í tólf manna hópnum. Níu af tólf leikmönnum liðsins í ár voru með fyrir tveimur árum en þær sem koma nýjar inn í liðið eru Lilja Ósk Sigmarsdóttir úr Grindavík og svo Haukastúlkurnar Klara Guðmundsdóttir og Kristín Fjóla Reynisdóttir. Þær þrjár voru allar með 16 ára landsliðinu á Norðurlandamótinu í fyrra og hafa því allir leikmenn liðsins spilað í Solna áður. Margrét Kara Sturludóttir úr Keflavík er reyndasti leikmaður liðsins en hún hefur spilað 31 landsleik og er að mæta á sitt fjórða Norðurlandamót í röð. Hafrún Hálfdánardóttir úr Hamri er aftur á móti stigahæsti leikmaður liðsins með 169 stig í 24 landsleikjum sem gerir 7,0 stig að meðaltali í leik. Hafrún er ein af sex leikmönnum liðsins sem hefur skorað yfir 100 stig fyrir unglingalandslið Íslands. 18 ára liða kvenna Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Fimmtudagur 17. maí 10:30 Ísland-Svíþjóð Fimmtudagur 17. maí 18:30 Ísland-Finnland Föstudagur 18. maí 9:00 Ísland-Danmörk Laugardagur 19. maí 7:00 Ísland-Noregur Á sunnudeginum, 20. maí, er síðan leikið um sæti Bakverðir: Jóhanna Björk Sveinsdóttir Númer á treyju: 4 Félag: Hamar Fæðingarár: 1989 Hæð: 180 sm Landsleikir/stig: 13 leikir, 4 stig Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 0 stig) Lilja Ósk Sigmarsdóttir Númer á treyju: 5 Félag: Grindavík Fæðingarár: 1990 Hæð: 178 sm Landsleikir/stig: 11 leikir, 103 stig Reynsla af NM: Annað skipti (4 leikir, 24 stig) Berglind Anna Magnúsdóttir Númer á treyju: 6 Félag: Grindavík Fæðingarár: 1989 Hæð: 174 sm Landsleikir/stig: 29 leikir, 41 stig Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 21 stig) Ingibjörg Jakobsdóttir Númer á treyju: 7 Félag: Grindavík Fæðingarár: 1990 Hæð: 175 sm Landsleikir/stig: 24 leikir, 85 stig Reynsla af NM: Þriðja skipti (9 leikir, 23 stig) Íris Sverrisdóttir Númer á treyju: 8 Félag: Grindavík Fæðingarár: 1990 Hæð: 178 sm Landsleikir/stig: 13 leikir, 100 stig Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 35 stig) Klara Guðmundsdóttir Númer á treyju: 12 Félag: Haukar Fæðingarár: 1990 Hæð: 176 sm Landsleikir/stig: 11 leikir, 41 stig Reynsla af NM: Annað skipti (4 leikir, 22 stig) Kristín Fjóla Reynirsdóttir Varafyrirliði Númer á treyju: 13 Félag: Haukar Fæðingarár: 1990 Hæð: 176 sm Landsleikir/stig: 19 leikir, 20 stig Reynsla af NM: Annað skipti (4 leikir, 4 stig) Framherjar: Margrét Kara Sturludóttir Fyrirliði Númer á treyju: 9 Félag: Keflavík Fæðingarár: 1989 Hæð: 177 sm Landsleikir/stig: 31 leikur, 159 stig Reynsla af NM: Fjórða skipti (15 leikir, 59 stig) Unnur Tara Jónsdóttir Númer á treyju: 10 Félag: Haukar Fæðingarár: 1989 Hæð: 185 sm Landsleikir/stig: 26 leikir, 141 stig Reynsla af NM: Þriðja skipti (10 leikir, 51 stig) Hafrún Hálfdánardóttir Númer á treyju: 11 Félag: Hamar Fæðingarár: 1990 Hæð: 182 sm Landsleikir/stig: 24 leikir, 169 stig Reynsla af NM: Þriðja skipti (9 leikir, 45 stig) María Lind Sigurðardóttir Númer á treyju: 14 Félag: Haukar Fæðingarár: 1989 Hæð: 181 sm Landsleikir/stig: 13 leikir, 15 stig Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 8 stig) Miðherjar: Ragna Margrét Brynjarsdóttir Númer á treyju: 15 Félag: Haukar Fæðingarár: 1990 Hæð: 189 sm Landsleikir/stig: 24 leikir, 145 stig Reynsla af NM: Þriðja skipti (9 leikir, 54 stig) Þjálfari: Þjálfari liðsins er Ágúst Björgvinsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Hauka í Iceland Express deild kvenna. Þetta verður í þriðja skipti sem Ágúst fer með lið á Norðurlandamót í Solna en 18 ára landslið kvenna vann silfur undir hans stjórn árið 2005. Ágúst Björgvinsson á NM: 2003 18 ára landslið kvenna (1984) 4. sæti 0-4, 0% 2005 18 ára landslið kvenna (1987) 2. sæti 3-2, 60% 2007 18 ára landslið kvenna (1989) ?. sæti 9 leikir - 3 sigrar, 6 töp - 33% sigurhlutfall Sagan: Sigurhlutfall 18 ára landsliðs kvenna eftir árum: 2003 (1984) 0-4, 0% 2004 (1985) 0-4, 0% 2005 (1987) 3-2, 60% 2006 (1988) 4-1, 80% Samtals: 18 leikir, 7 sigrar, 11 töp, 39% Sætaskipan 18 ára landsliðs kvenna: 1. sæti - (0) 2. sæti - (2) 2005, 2006 3. sæti - (0) 4. sæti - (2) 2003, 2004 5. sæti - (0) Gengi 18 ára landsliðs kvenna gegn þjóðum: Danmörk - (5 leikir) 2 sigur og 3 töp, 40% Finnland - (4 leikir) 2 sigur og 2 töp, 50% Noregur - (3 leikir) 2 sigur og 1 tap, 67% Svíþjóð - (6 leikir) 1 sigrar og 5 töp, 17% Samtals: 18 leikir, 7 sigrar, 11 töp, 39% Norðurlandameistarar 18 ára landsliða kvenna: 2003 - Svíþjóð 2004 - Svíþjóð 2005 - Svíþjóð 2006 - Svíþjóð Metin á NM 2003-2006: Flestir leikir Ingibjörg Skúladóttir 10 Bára Bragadóttir 10 Bára Fanney Hálfdanardóttir 10 Bryndís Guðmundsdóttir 10 Helena Sverrisdóttir 10 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 10 María Ben Erlingsdóttir 10 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 10 Hrund Jóhannsdóttir 9 Guðrún Ósk Ámundadóttir 9 Erna Rún Magnúsdóttir 8 Petrúnella Skúladóttir 8 Kristrún Sigurjónsdóttir 8 Flest stig Helena Sverrisdóttir 220 María Ben Erlingsdóttir 126 Bryndís Guðmundsdóttir 124 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 77 Kristrún Sigurjónsdóttir 71 Petrúnella Skúladóttir 68 Pálína María Gunnlaugsdóttir 68 Flest stig að meðaltali í leik Helena Sverrisdóttir 22 Pálína María Gunnlaugsdóttir 13,6 María Ben Erlingsdóttir 12,6 Bryndís Guðmundsdóttir 12,4 Kristrún Sigurjónsdóttir 8,9 Petrúnella Skúladóttir 8,5 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 7,7 Flest stig í einum leik Helena Sverrisdóttir 33 (28.5.2006, Svíþjóð) María Ben Erlingsdóttir 30 (26.5.2006, Finnland) Helena Sverrisdóttir 30 (24.5.2006, Svíþjóð) Helena Sverrisdóttir 29 (6.5.2005, Finnland) Helena Sverrisdóttir 27 (4.5.2005, Svíþjóð) Pálína María Gunnlaugsdóttir 24 (5.5.2005, Danmörk) Bryndís Guðmundsdóttir 23 (6.5.2005, Finnland) Helena Sverrisdóttir 23(25.5.2006, Noregur) Pálína María Gunnlaugsdóttir 21 (6.5.2005, Finnland) Helena Sverrisdóttir 21 (7.5.2005, Noregur) Helena Sverrisdóttir 20 (8.5.2005, Svíþjóð)