15 maí 2007Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð á morgun. Sextán ára landsliðið stelpna hefur leik gegn Finnum klukkan 17.00 eða stuttu eftir komuna til Svíþjóðar og það gefst því ekki langur tími fyrir stelpurnar að ná úr sér flugþreytunni. Heimasíðan kynnir unglingalandsliðin sem eru á leiðinni til Solna. Leikmenn liðsins koma frá sjö félögum. Haukar eiga flesta leikmenn í hópnum eða þrjár en tveir leikmenn koma frá bæði Hrunamönnum, Kormáki og Keflavík. Njarðvík, KR og Snæfell eiga síðan öll einn leikmann í tólf manna hópnum. Meira en helmingur liðsins er að spila upp fyrir sig þar af er Keflvíkingurinn María Ben Jónsdóttir yngst en hún er fædd 1993 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Haukastúlkurnar þrjár, sem eru fæddar árið 1992 náðu því í vetur að verða Íslands- og bikarmeistarar í bæði 1991 og 1992 árganginum. Sextán ára landslið kvenna náði sínum besta árangri vorið 2004 þegar liðið varð Norðurlandameistari en liðið hefur ekki náð í verðlaun á tveimur síðustu mótum. Salbjörg Ragna Sævarsdóttir úr Kormáki er reyndasti leikmaður liðsins en hún hefur spilað 13 landsleiki. Salbjörg er aðeins ein af þremur leikmönnum liðsins sem á að baki leiki í íslenska landsliðsbúningnum og sú eina sem hefur komið áður á Norðurlandamót í Solna. Hinar tvær sem eiga að baki landsleiki eru Guðbjörg Sverrisdóttir úr Haukum og Lóa Dís Másdóttir úr Kormáki. 16 ára liða kvenna Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Miðvikudagur 16. maí 17:00 Ísland-Finnland Fimmtudagur 17. maí 16:30 Ísland-Danmörk Föstudagur 18. maí 15:00 Ísland-Svíþjóð Laugardagur 19. maí 13:00 Ísland-Noregur Á sunnudeginum, 20. maí, er síðan leikið um sæti Bakverðir: Guðbjörg Sverrisdóttir Varafyrirliði Númer á treyju: 4 Félag: Haukar Fæðingarár: 1992 Hæð: 179 sm Landsleikir/stig: 7 leikir, 13 stig Reynsla af NM: Fyrsta skipti Rannveig Ólafsdóttir Númer á treyju: 5 Félag: Haukar Fæðingarár: 1992 Hæð: 167 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Heiðrún Kristmundsdóttir Númer á treyju: 6 Félag: UMF Hrunamanna Fæðingarár: 1992 Hæð: 167 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Dagmar Traustadóttir Númer á treyju: 8 Félag: Njarðvík Fæðingarár: 1992 Hæð: 170 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Heiðrún Hödd Jónsdóttir Númer á treyju: 10 Félag: Haukar Fæðingarár: 1991 Hæð: 177 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Framherjar: Elma Jóhannsdóttir Númer á treyju: 9 Félag: UMF Hrunamanna Fæðingarár: 1992 Hæð: 176 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Helga Hjördís Björgvinsdóttir Númer á treyju: 12 Félag: Snæfell Fæðingarár: 1991 Hæð: 177 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Lóa Dís Másdóttir Fyrirliði Númer á treyju: 14 Félag: Kormákur Fæðingarár: 1991 Hæð: 179 sm Landsleikir/stig: 7 leikir, 6 stig Reynsla af NM: Fyrsta skipti Salbjörg Ragna Sævarsdóttir Númer á treyju: 15 Félag: Kormákur Fæðingarár: 1991 Hæð: 185 sm Landsleikir/stig: 11 leikir, 4 stig Reynsla af NM: Annað skipti (4 leikir, 2 stig) Miðherjar: María Ben Jónsdóttir Númer á treyju: 7 Félag: Keflavík Fæðingarár: 1993 Hæð: 183 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Sara Mjöll Magnúsdóttir Númer á treyju: 11 Félag: Keflavík Fæðingarár: 1992 Hæð: 180 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir Númer á treyju: Félag: KR Fæðingarár: 1991 Hæð: 179 sm Landsleikir/stig: Nýliði Reynsla af NM: Fyrsta skipti Þjálfari: Þjálfari liðsins er Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Breiðabliks í Iceland Express deild kvenna. Þetta verður í annað skipti sem Yngvi fer með lið á Norðurlandamót í Solna. Yngvi Gunnlaugsson á NM: 2006 16 ára landslið kvenna (1990) 5. sæti 0-4, 0% 4 leikir - 0 sigrar, 4 tap - 0% sigurhlutfall Sagan: Sigurhlutfall 16 ára landsliðs kvenna eftir árum: 2003 (1986) 1-4, 20% 2004 (1988) 4-1, 80% 2005 (1989) 1-4, 20% 2006 (1990) 0-4, 0% Samtals: 19 leikir, 6 sigrar, 13 töp, 32% Sætaskipan 16 ára landsliðs kvenna: 1. sæti - (1) 2004 2. sæti - (0) 3. sæti - (0) 4. sæti - (2) 2003, 2005 5. sæti - (1) 2006 Gengi 16 ára landsliðs kvenna gegn þjóðum: Danmörk - (5 leikir) 1 sigur og 4 töp, 20% Finnland - (5 leikir) 1 sigur og 4 töp, 20% Noregur - (4 leikir) 3 sigrar og 1 töp, 75% Svíþjóð - (5 leikir) 1 sigur og 4 töp, 20% Samtals: 19 leikir, 6 sigrar, 13 töp, 32% Norðurlandameistarar 16 ára landsliða kvenna: 2003 - Svíþjóð 2004 - Ísland 2005 - Svíþjóð 2006 - Svíþjóð Metin á NM 2003-2006: Flestir leikir Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 10 Bryndís Guðmundsdóttir 10 Helena Sverrisdóttir 10 Margrét Kara Sturludóttir 10 María Ben Erlingsdóttir 10 Hafrún Hálfdánardóttir 9 Alma Rut Garðarsdóttir 9 Ingibjörg Jakobsdóttir 9 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 9 Flest stig Helena Sverrisdóttir 266 María Ben Erlingsdóttir 123 Alma Rut Garðarsdóttir 67 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 63 Bryndís Guðmundsdóttir 55 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 54 Margrét Kara Sturludóttir 51 Unnur Tara Jónsdóttir 47 Hafrún Hálfdánardóttir 45 Íris Sverrisdóttir 35 Pálína María Gunnlaugsdóttir 31 Ösp Jóhannsdóttir 30 Flest stig að meðaltali í leik Helena Sverrisdóttir 26,6 María Ben Erlingsdóttir 12,3 Unnur Tara Jónsdóttir 9,4 Alma Rut Garðarsdóttir 7,4 Íris Sverrisdóttir 7,0 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 6,3 Pálína María Gunnlaugsdóttir 6,2 Flest stig í einum leik Helena Sverrisdóttir 46 (21.5.2004, Finnland) Helena Sverrisdóttir 45 (23.5.2004, Svíþjóð) Helena Sverrisdóttir 29 (20.5.2004, Danmörk) Helena Sverrisdóttir 27 (19.5.2004, Svíþjóð) Helena Sverrisdóttir 27 (31.5.2003, Danmörk) Helena Sverrisdóttir 25 (30.5.2003, Noregur) María Ben Erlingsdóttir 23 (21.5.2004, Finnland)