15 maí 2007[v+]http://www.fiba.com/[v-]FIBA World[slod-] hefur hafið framleiðslu á þætti um körfubolta. Þátturinn, sem kallast FIBA World Basketball, er sýndur í sjónvarpi víðs vegar um heiminn en einnig er hægt að [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fc/inte/vide/fwb/p/langid/1/newsid/19167/epis.html[v-]horfa á hann á netinu[slod-]. Þátturinn, sem kemur út vikulega, er sýndur í meira en 125 löndum og fjallar um það helsta sem að er að gerast í körfubolta víðs vegar um heiminn Í gær var þátturinn settur á netið í fyrsta sinn og mun nýr þáttur koma á FIBA síðuna á hverjum mánudegi. Í þætti vikunnar er meðal annars fjallað um NBA deildina, ítölsku deildina og körfubolta á Nýja Sjálandi. Einnig er sviðsljósinu beint að leikmönnunum Marco Bellinelli og Leandro Barbosa.