12 maí 2007Ársþing Körfuknattleikssambands Evrópu, FIBA Europe, fer fram í Varsjá í Póllandi um helgina. Ísland á þrjá fulltrúa þar, Hannes Jónsson formann KKÍ, Fiðrik Inga Rúnarsson framkvæmdastjóra og Ólaf Rafnsson sem er í stjórn FIBA Europe. Helstu mál þingsins eru þau að fjárhagsstaða sambandsins er mjög góð og spurning hvenær sambandið fer að greiða aðildarsamböndum líkt og gert er í knattspyrnunni en það skiptir þjóð eins og Ísland miklu máli, sérstaklega í ljósi stöðunnar eins og hún er nú. Á þinginu voru Spánverjar og Ítalir með kynningar á Evrópukeppnum sem fram fara í haust en úrslit Evrópukeppni karlalandsliða fara fram á Spáni og kvenna á Ítalíu í haust. Miguael Betancor yfirmaður dómaramála var svo með kynningu á nýju verkefni sem FIBA Europe er með í gangi en það er stafræn leikskýrsla (digital scoresheet). Einnig var ákveðið að hætta með EuroCup Challenge sem hefur farið fram undanfarin á og Keflavík og Njarðvík hafa tekið þátt í en í stað hennar verður forkeppni fyrir EuroCup. Stjórn FIBA Europe ákvað á fundi sínum sem fór fram samhliða þinginu að úrslit Evrópukeppni kvennalandsliða fari fram í Lettlandi árið 2009 sem og að sambandið mun tryggja alla leikmannasamninga vegna landsliða á sinn kostnað.