7 maí 2007[v+]http://www.haukar-karfa.is/[v-]Haukar[slod-] standa fyrir ljósmyndasamkeppni á heimasíðu sinni. Körfuknattleiksdeild Hauka óskar því eftir myndum af liðnum vetri. Samkeppninni er skipt í þrjá flokka en það eru meistaraflokkar, yngri flokkar og innra starf körfuknattleiksdeildar Haukar. Allar myndir skulu berast á netfangið [p+]brynjarorn@simnet.is[p-]brynjarorn@simnet.is[slod-] og með þeim þurfa að fylgja upplýsingar um mynd, hver tók hana og hvenær. Nú þegar hafa nokkuð margar myndir borist og hefur því verið ákveðið að framlengja frestinn til að skila inn myndum til 24. maí.