5 maí 2007Þingstörf á seinni degi ársþings KKÍ hefjast núna klukkan 10:00. Nefndir luku störfum sínum í gær við að ræða tillögur sem lagðar voru fyrir þingið og munu skila áliti sínu í dag. Umræður voru líflegar í nefndarstörfunum í gærkvöldi, enda á mörgu að taka og mikilvæg málefni rædd. Umræða verður um nefndarálitin núna í morgun og síðan verður kosið um þingtillögurnar. [v+]http://karfan.is/[v-]Karfan.is[slod-], verður áfram á þinginu og mun birta fréttir af þinginu og niðurstöðum kosninga.