5 maí 2007Síðasta mál ársþings KKÍ sem lauk í dag var að kjósa þrjá stjórnarmeðlimi. Úr aðalstjórn gengu Guðbjörg Norðfjörð og Jón Halldórsson auk þess sem Snorri Örn Arnaldsson var í framboði aftur. Hann var kosinn sem og Þóra Melsted sem verið hefur í varastjórn og þriðji stjórnarmaðurinn sem kjörinn var í dag er Guðjón Guðmundsson. Í varastjórn voru kjörin Guðbjörg Norðfjörð, Erlingur Hannesson og Guðjón Þorsteinsson. Stjórn KKÍ 2007-2009 er þá þannig skipuð. Formaður: Hannes S.Jónson Meðstjórnendur Eyjólfur Þór Guðlaugsson, Snorri Örn Arnaldsson, Þóra Melsted, Bjarni Gaukur Þórmundsson, Guðjón Guðmundsson og Gísli Georgsson. Varmenn í stjórn eru: Guðjón Þorsteinsson, Erlingur Hannesson og Guðjörg Norðfjörð. Á fyrsta stjórnarfundi eftir þetta þing munu stjórnarmenn skipta með sér verkum og skipa í embætti t.d. varaformanns, gjaldkera og ritara