4 maí 2007Í dag verða fjögurra liða úrslit í [v+] http://www.euroleague.net/[v-]Evrópudeildinni[slod-] leikin í Aþenu, höfuðborg Grikklands. [v+] http://www.euroleague.net/final-four/i/11695/1003/item[v-]CSKA Moskva[slod-] og [v+] http://www.euroleague.net/final-four/i/11718/1003/item[v-]Unicaja Malaga[slod-] mætast klukkan 14:30 í fyrri leik dagsins. Seinni leikurinn er á milli heimamanna í [v+] http://www.euroleague.net/final-four/i/11688/1003/item[v-]Panthinaikos[slod-] og [v+] http://www.euroleague.net/final-four/i/11691/1003/item[v-]Tau Ceramica[slod-] frá Spáni og hefst hann klukkan 17:30. Allt eru þetta stjörnum prýdd lið. Þar má nefna leikmenn eins og Luis Scola, Theodoros Papaloukas, Jiri Welsch, Oscar Torres, Tony Delk og marga fleiri. Luis Scola, segir í [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fc/news/lateNews/p/newsid/18956/arti.html[v-]viðtali [slod-] að hann og liðsfélagar sínir í Tau Ceramica séu bjartsýnir fyrir leikinn í dag þrátt fyrir að þurfa að leika gegn heimamönnum. Scola hefur áður unnið stóra sigra á þessum leikvangi en hann varð Ólympíumeistari með Argentínu í O.A.K.A. höllinni árið 2004. Ettore Messina, þjálfari CSKA Moskvu, segir í [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fc/news/lateNews/contLeag/euroLeag/p/newsid/18955/arti.html[v-]viðtali á heimasíðu FIBA[slod-] að þrátt fyrir að margir telji líklegt að CSKA komist í úrslit þá megi alls ekki vanmeta lið Unicaja Malaga. CSKA var ekki talið líklegt til þess að sigra í fyrra en tókst það engu að síður ásamt því að vinna Rússneska titilinn.