28 apr. 2007Kristrún Sigurjónsdóttir, leikmaður Hauka, var með bestu þriggja stiga nýtinguna í Iceland Express deild kvenna á síðasta tímabili. Kristrún var með 39,1% þriggja stiga skotnýtingu en hún hitti úr 27 af 69 þriggja stiga skotum í vetur. Kristrún er eitt af mikilvægum vopnum í sókninni hjá Íslands og bikarmeisturum Hauka. Hér fyrir neðan má sjá 10 efstu leikmenn í þriggja stiga nýtingu á síðasta tímabili í Iceland Express deild kvenna. Nafn Lið Nýting í % (Skot hitt, Skot reynd) 1 Kristrún Sigurjónsdóttir Haukar 39,1 (27, 69) 2 Victoria Crawford Breiðablik 38,2 (26, 68) 3 Casey Rost ÍS 35,9 (14, 39) 4 Ingibjörg E Vilbergsdóttir Keflavík 34,7 (17, 49) 5 TaKesha Watson Keflavík 33,6 (51, 152) 6 Alma R Garðarsdóttir UMFG 33,3 (15, 45) 7 Ifeoma Okonkwo Haukar 32,7 (18, 55) 8 Sigrún S Ámundadóttir Haukar 32,7 (16, 49) 9 Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík 32,5 (13, 40) 10Petrúnella Skúladóttir UMFG 31,9 (15, 47)