28 apr. 2007[v+]http://www.kki.is/tolfraedi_ferill_leikmanns.asp?Felaganumer=164669[v-]Jeb Ivey[slod-], leikmaður UMFN, var með bestu þriggja stiga nýtinguna á síðasta tímabili í Iceland Express deild karla. Ivey var með 47,2% nýtingu í þriggja stiga skotum á tímabilinu en hann hitti úr 76 af 161 þriggja stiga skotum sínum í vetur. Ivey setti persónulegt met þegar hann hitti úr 7 þriggja stiga skotum í leik gegn Tindastól 29. október síðastliðinn. [v+]http://www.kki.is/tolfraedi_ferill_leikmanns.asp?Felaganumer=121480[v-]Brenton Birmingham[slod-], leikmaður UMFN, var efstur íslenskra leikmanna á listanum. Hann var með 43,5% þriggja stiga nýtingu í vetur en hann hitti úr 50 af 115 þriggja stiga skotum á tímabilinu. Hér fyrir neðan er listi yfir þá leikmenn sem að voru með besta þriggja stiga nýtingu í Iceland Express deild karla í vetur. Nafn Lið Nýting í % (Skot hitt, Skot reynd) 1 Jeb Ivey UMFN 47,2 (76, 161) 2 Milojica Zekovic Tindastóll 46,2 (30, 65) 3 Jovan Zdravevski Skallagrímur 44,6 (70, 157) 4 Brenton J Birmingham UMFN 43,5 (50, 115) 5 Bojan Bojovic Hamar/Selfoss 42,9 (36, 84) 6 Sveinbjörn Claessen ÍR 42,5 (34, 80) 7 Páll A Vilbergsson UMFG 42,0 (76, 181) 8 Nate Brown ÍR 41,9 (39, 93) 9 Magnús Þ Gunnarsson Keflavík 41,8 (61, 146) 10Axel Kárason Skallagrímur 41,5 (22, 53)