23 apr. 2007[v+]http://www.kki.is/tolfraedi_ferill_leikmanns.asp?Felaganumer=164928[v-]Damon Bailey[slod-] var stigahæstur í Iceland Express deild karla á liðnu tímabili. Hann skoraði 24,1 stig að meðaltali í leik fyrir Þór Þorlákshöfn. Bailey lék alla 22 deildarleikina með Þórsurum og skoraði samtals 530 stig á tímabilinu. Mest skoraði hann 38 stig gegn UMFN 30. desember síðastliðinn. Skotnýtingin var heldur ekki slæm því að Bailey hitti úr rúmlega 54% skota sinna utan af velli og var með 77% nýtingu frá vítalínunni. [v+]http://www.kki.is/tolfraedi_ferill_leikmanns.asp?Felaganumer=25644[v-]Páll Axel Vilbergsson[slod-] var efstur af íslensku leikmönnunum með 22,2 stig að meðaltali í leik. 10 stigahæstu leikmennirnir: Nafn Lið meðalt. (leikir, stig) 1 Damon Bailey Þór Þ. 24,4 (22, 530) 2 Lamar Karim Tindast. 23,1 (22, 508) 3 Páll Axel UMFG 22,2 (22, 489) 4 Jovan Zdravevski Skallagr. 21,8 (22, 480) 5 Kareem Johnson Fjölnir 20,6 (17, 350) 6 Darrell Flake Skallagr. 20,0 (22, 440) 7 Roni Leimu Haukar 19,6 (20, 391) 8-9 Jeb Ivey UMFN 19,5 (22, 428) 8-9 Tyson Patterson KR 19,5 (22, 428) 10 Jeremiah Sola KR 18,8 (22, 414)