18 apr. 2007Það hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum að KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla á mánudaginn. Nú er hægt að finna á vefnum fréttir, myndbrot og myndir frá leiknum sem að gaman er að skoða. Á heimasíðu [v+]http://kr.is/karfa/[v-]KR[slod-] er að finna góða [v+]http://kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=277167[v-] grein[slod-] um leikinn. Þar er m.a. að finna ljósmyndir og umfjöllun um leikinn en einnig tengla á fleiri greinar og myndasíður sem tengjast úrslitunum. [v+]http://kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=277167[v-]Víkurfréttir [slod-] voru að setja inn á heimasíðuna sína gott myndasafn úr leik 4 og einnig er þar að finna góðan þátt um leikinn sem hægt er að horfa á. Í þættinum eru sýnd myndbrot úr leiknum og tekin viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna. Það er mikils virði að geta lesið um leikinn og skoðað myndbrot og myndir frá þessum frábæra leik sem að er á allra vörum um þessar mundir.