5 apr. 2007Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson hefur skorað flest stig í fyrstu fjórum leikjum undanúrslitaeinvígis Njarðvíkur og Grindavíkur sem lýkur með oddaleik í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Njarðvíkingurinn Igor Beljanski er með hæsta framlagið en Páll Kristinsson hjá Grindavík er efstur í þremur tölfræðiþáttum en hann hefur tekið flest fráköst, stolið flestum boltum og varið flest skot. Adama Darboe hjá Grindavík hefur gefið flestar stosðendingar en Páll Axel hefur spilað í flestar mínútur og skorað flestar þriggja stiga körfur ásamt Njarðvíkingnum Jóhanni Árna Ólafssyni. Það er síðan Jonathan Griffin hjá Grindavík sem hefur fengið flestar villur allra leikmanna í einvíginu. Það má finna alla þessa lista og fleiri undir nýrri grein hér á KKÍ-síðunni en hana má nálgast einnig hér. KKÍ-síðan hefur tekið saman bestan árangur leikmanna í einvíginu til þessa. Það má finna alla þessa lista og fleiri undir nýrri grein hér á KKÍ-síðunni en hana má nálgast einnig [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?adgerd=ein&id=350[v-]hér[slod-].