4 apr. 2007Í kvöld klukkan 19:15 verður í Kennaraháskólanum þriðji og síðasti leikur Vals og Stjörnunar í úrslitum 1. deildar karla. Það lið sem að sigrar í kvöld tryggir sér sæti í Iceland Express deild karla á næsta tímabili. Valsmenn sigruðu fyrsta leikinn á heimavelli [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002658_4_1[v-]80-77[slod-] en Stjarnan náði að jafna metin í Ásgarði með góðum leik. Lokatölur í leik 2 voru [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002658_5_1[v-]85-70[slod-]. Einvígið er því jafnt, 1-1, og um hreinan úrslitaleik að ræða í kvöld. Úrslitakeppnin í 1. deildinni hefur verið mjög skemmtileg. Það hefur verið góð mæting á leiki og mikil spenna hefur verið í einvígunum. Það má því búast við góðri skemmtun í Kennaraháskólanum í kvöld. [v+]http://www.flickr.com/photos/kki_myndir/[v-]Hér[slod-] er hægt að sjá myndir úr leik 2.