
4 apr. 2007Á fjórða leik UMFG og UMFN í Iceland Express deild karla síðastliðinn mánudag var skotið uppá ferð til London. Svanhildur Káradóttir gerði sér lítið fyrir og hitti frá þriggja stiga línunni. Hún vann sér þar með ferð fyrir 2 til London með Iceland Express. Svanhildur bætist þar með í hóp áhorfenda sem að hafa unnið sér inn ferðir með því að hitta úr Borgarskotinu en alls hafa 8 áhorfendur unnið sér inn ferðir.


