31 mar. 2007 Það verður sannkallaður stórleikur að Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16:00 í dag. Þá mætast Haukar og ÍS í 5. leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Þetta er hreinn úrslitaleikur um réttinn til þess að leika í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Heimavöllurinn hefur skipt sköpum í einvíginu til þessa en Haukar eru með heimavallarréttinn. Fyrsti leikurinn fór [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002659_1_1[v-]76-61[slod-] fyrir Hauka. ÍS sigraði leik 2 [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002659_2_1[v-]84-74[slod-], Haukar þann þriðja [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002659_3_1[v-]78-61[slod-] og í síðasta leik sigraði svo ÍS með 10 stiga mun [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002659_4_1[v-]87-77[slod-]. Það verður því mjög áhugavert að fylgjast með leiknum í dag. Haukar voru fyrirfram taldar sigurstranglegri aðilinn enda höfðu þær sigrað alla leiki liðanna í vetur og enduðu á toppi deildarinnar á meðan ÍS var í 4. sæti. Í liði ÍS eru þó margir sterkir leikmenn og þær hafa sýnt að þær eru sýnd veiði en ekki gefin.