24 mar. 2007Það er óhætt að segja að Borgarskotið sem er á öllum leikjum í úrslitakeppnum karla og kvenna hafi vakið athygli. [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-] býður upp á svokallað borgarskot þar sem 4 áhorfendur eru dregnir og eða valdir út á öllum leikjum í úrslitakeppnunum og fá þeir að skjóta upp á borgarferð til einhverra af áfangastöðum [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-] Ákveðið er þó fyrirfram til hvaða borgar er skotið upp á fyrir hvern leik. Reglur eru þær að karlmenn skjóti frá miðju á meðan að börn og konur fá að skjóta frá 3- stiga línunni. Nú þegar hafa tveir hitt og fékk annar ferð fyrir tvo til Parísar og hinn ferð fyrir 2 til Eindhoven. Ráðgert er að afhenda vinningshöfum gjafabréfin í einhverjum af þeim fjölmörgu beinum útsendingum sem Sýn verður með frá Iceland Express deild karla á næstunni. Á leik Grindavíkur og Keflavíkur í dag hjá konunum verður skotið upp á ferð til Oslóar og á leik Njarðvíkur og Grindavíkur hjá körlunum í kvöld verður skotið upp á ferð til Friedrichshafen í Þýskalandi.