15 mar. 2007Aganefnd hefur tekið fyrir kærur sem að bárust í síðustu viku. 2 leikmenn voru dæmdir í leikbann. Gunnlaugur H. Elsuson, leikmaður Tindastóls, var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir óprúðmannlega framkomu eftir leik gegn KR. Steinar Aronsson, leikmaður Hauka, fékk eins leiks bann fyrir óprúðmannlega framkomu í leik gegn Val í Drengjaflokki. Úrskurðurinn tekur gildi á hádegi á morgun.