11 mar. 2007Bikarúrslitum yngriflokka lauk í dag með 4 leikjum. Haukar, Fjölnir og Keflavík urðu bikarmeistarar í dag. Í 9. flokki kvenna urðu Haukar bikarmeistarar eftir [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002571/25710401.htm [v-]55-23[slod-] sigur á Hamri/Selfoss. Guðbjörg Sverrisdóttir valin kona leiksins en hún skoraði 26 stig, tók 11 fráköst og stal 7 boltum. Fjölnir A og Fjölnir B mættust í bikarúrslitaleik karla í 10. flokki þar sem A-liðið fór með öruggan [v+][v-]69-41[slod-] sigur af hólmi og var Ægir Þór Steinarsson, A liði Fjölnis, valinn maður leiksins en hann var með 23 stig, tók 14 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal tveimur boltum í leiknum. Keflavík og Haukar mættust í unglingaflokki kvenna. Haukar höfðu nauman sigur [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002564/25640201.htm[v-]65-64[slod-] eftir æsispennandi leik. Sigrún Ámundadóttir, Haukum, var valin kona leiksins en hún gerði 21 stig í leiknum og tók 12 fráköst. Í Drengjaflokki vann Keflavík [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002565/25650301.htm [v-]67-55[slod-] sigur á FSu. Þröstur Leó Jóhannsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 26 stig, tók 8 fráköst, varði 5 skot, stal 4 boltum og gaf 2 stoðsendingar. Hægt er að lesa umfjöllun um leikina á [v+]http://karfan.is/[v-]karfan.is[slod-].