9 mar. 2007Í kvöld mun Þór Akureyri taka við deildarmeistaratitli 1. deildar karla. Þeir eru ósigraðir í 1. deildinni í vetur og hafa því tryggt sér sæti í Iceland Express deildinni á næsta tímabili. Þór leikur í kvöld gegn Stjörnunni og hefst leikurinn klukkan 19:15 í Síðuskóla. Stjarnan er í mikilli baráttu við KFÍ um að tryggja sér sæti í úrslitakeppni 1. deildar og takist þeim að sigra í kvöld þá tryggja þeir sér 5. sætið. Það verður þó ekki auðvelt fyrir þá því að Þórsarar hafa verið gríðarlega sterkir í vetur. Fyrri leikur liðanna endaði [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002489/24890601.htm[v-]83-103[slod-] fyrir Þór. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002489.htm[v-]Staðan í 1. deild karla[slod-].