8 mar. 2007Í kvöld klukkan 19:15 hefjast 6 síðustu leikir deildarkeppninnar í Iceland Express deild karla. Enn er ekki komið á hreint hverjir fylgja Haukum niður í aðra deild og heldur ekki hverjir ná öðru sæti deildarinnar. Fjölnir mætir Tindastóli í Grafarvogi. Ef að Fjölnir nær að sigra og Þór Þorlákshöfn tapar gegn Njarðvík þá heldur Fjölnir sér í deildinni. Það er því gríðarlega mikið í húfi fyrir Fjölni og hafa þeir kynnt leikinn vel í Grafarvoginum og stefna á að fylla húsið í kvöld. Fyrri leikur liðanna í vetur fór [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501103.htm[v-]96-84[slod-] fyrir Tindastól. Hægt er að lesa meira um leikinn á [v+]http://www.fjolnir.is/fjolnir/karfa/[v-]heimasíðu Fjölnis[slod-]. Í Þorlákshöfn taka heimamenn í Þór á móti deildarmeisturunum frá Njarðvík. Ef að Þórsarar sigra þá tryggja þeir sér sæti í Iceland Express deildinni á næsta tímabili. Fyrri leikur liðanna var æsispennandi og endaði með sigri Njarðvíkinga [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501101.htm[v-]105-100[slod-]eftir framlengingu. Skallagrímur tekur á móti ÍR í Borgarnesi. Skallagrímur er í baráttu um 2. sæti deildarinnar en ÍR-ingar eru öruggir með 7. sætið. ÍR sigraði fyrri leik liðanna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501106.htm[v-]95-82[slod-]. Í Keflavík verður stórleikur þegar Snæfell kemur í heimsókn. Keflvíkingar þurfa að sigra til þess að tryggja sig í 5. sæti deildarinnar en Snæfell er í baráttu um að halda 3. sætinu. Síðasti leikur liðanna endaði [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501105.htm[v-]80-67[slod-] fyrir Snæfell. Í DHL-Höllinni mætast KR og UMFG. KR-ingar tryggja sér 2. sæti deildarinnar með sigri í leiknum en UMFG á möguleika á að komast upp fyrir Keflavík ef að þeir ná að sigra í kvöld. Fyrri viðureign liðanna endaði með sigri KR [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501104.htm[v-]78-89[slod-]. Í Hafnarfirði taka Haukar á móti Hamar/Selfoss. Fyrri leikur liðanna í vetur endaði með sigri Hamars/Selfoss [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501102.htm[v-]99-86[slod-]. Nánari umfjöllun um leiki kvöldsins er að finna [v+]http://www.karfan.is/index.php?option=com_content&task=view&id=2885&Itemid=40[v-]hér[slod-]. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450.htm[v-]Staðan í deildinni[slod-].