8 mar. 2007Það verður einn leiku í Iceland Express deild kvenna í dag. Haukar taka í móti UMFG að Ásvöllum klukkan 17:00. Haukastelpurnar eru þegar búnar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og fá þær hann afhentann eftir leikinn. Ef að UMFG tekst að sigra í kvöld þá komast þær upp að hlið Keflavíkur með 28 stig. Þar með ættu þær möguleika á því að ná öðru sæti deildarinnar sem að tryggir heimavallarréttindi í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Liðin mættust síðast í deildinni 31. janúar og endaði sá leikur með sigri Hauka á útivelli [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002451/24511403.htm[v-]75-84[slod-]. Þegar liðin mættust á Ásvöllum, fyrir jól, sigruðu Haukar með einu stigi [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002451/24510903.htm[v-]82-81[slod-]. Haukar sigruðu fyrsta deildarleik liðanna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002451/24510403.htm[v-]82-108[slod-] í Grindavík. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002451.htm[v-]Staðan í deildinni[slod-].