6 mar. 2007Bikarúrslit yngri flokka verða núna um helgina 10. - 11. mars. Þau verða haldin í DHL-Höll KR-inga. Keppt verður í 9. flokkum alls, frá 9. flokki og upp í Unglingaflokk í karla og kvennaflokki. 5 leikir verða á laugardeginum og 4 leikir á sunnudeginum og hefst fyrsti leikur klukkan 10:00 báða dagana. KR-ingar munu halda mótið og leggja þeir mikinn metnað í að hafa umgjörðina sem glæsilegasta. Þessi helgi er einn af hápunktunum í yngri flokkunum þar sem að margir af efnilegustu leikmönnum landsins í karla og kvennaflokkum stíga á stokk. Dagskrá helgarinnar verður svona: Laugardagur 10. mars 10:00 9. flokkur drengja Hamar/Selfoss – Fjölnir 12:00 10. flokkur stúlkna UMFH - Haukar 14:00 11. flokkur drengja KR - Fjölnir 16:00 Stúlknaflokkur Keflavík - Haukar 18:00 Unglingaflokkur karla Njarðvík - Fjölnir Sunnudagur 11. mars 10:00 9. flokkur stúlkna Haukar – Hamar/Selfoss 12:00 10. flokkur drengja Fjölnir – Fjölnir B 14:00 Unglingaflokkur kvenna Haukar - Keflavík 16:00 Drengjaflokkur Keflavík - FSu Á heimasíðu KR er hægt að lesa nánari [v+]http://kr.is/karfa/frettir/?cat_id=12981&ew_0_a_id=267377[v-]umfjöllun [slod-] um helgina.