4 mar. 2007Næst síðasta umferð Iceland Express deildar karla hefst í kvöld með 4 leikjum. Leikirnir hefjast allir klukkan 19:15. Iceland Express leikir umferðarinnar eru leikir Hamars/Selfoss og Fjölnis og ÍR - Þór Þorlákshöfn. Það verður frítt inn á þrjá af fjórum leikjum kvöldsins og því upplagt fyrir alla að skella sér á leik. Í Njarðvík taka heimamenn á móti botnliði Hauka. Njarðvíkingar munu fá deildarbikarinn afhentann eftir leikinn og bjóða öllum frítt á leikinn. Haukar verða að sigra ætli þeir sér að eiga möguleika á því að halda sér í deildinni. Fyrri leikur liðanna fór [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501004.htm[v-]99-104[slod-] fyrir Njarðvík. ÍR tekur á móti Þór Þorlákshöfn í Seljaskóla. Þór Þorlákshöfn er í mikilli baráttu á botni deildarinnar en geta lagað stöðu sína töluvert með því að sigra í þessum leik. Þórsarar sigruðu í fyrri viðureign liðanna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501005.htm[v-]82-78[slod-]. Midi.is býður frítt inn á leikinn. Í Hveragerði tekur Hamar/Selfoss á móti Fjölni. Fjölnismenn þurfa nauðsynlega á stigum að halda ef að þeir ætla að ná Þór Þorlákshöfn og bjarga sér frá falli. Sigri Hamar/Selfoss tryggja þeir sér sæti í úrslitakeppninni. Hamar/Selfoss sigraði fyrri leik liðanna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501003.htm[v-]83-88[slod-]. Midi.is býður frítt inn á leikinn. Toppslagur umferðarinnar er viðureign Snæfells og Skallagríms í Stykkishólmi. Skallgrímur sigraði fyrri leik liðanna í Borgarnesi [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24501006.htm[v-]83-77[slod-] og þarf Snæfell því að sigra leikinn með 7 stigum til þess að komast upp fyrir Skallagrím.