2 mar. 2007Midi.is hefur ákveðið í samvinnu við ÍR og Hamars/Selfoss að bjóða á síðustu heimaleiki félaganna sem verða á sunnudaginn. Þetta er vegna þeirra óþæginda sem skapaðist á úrslitaleik ÍR og Hamars/Selfoss í Lýsingarbikarnum sem fram fór í Laugardalshöll 17.febrúar sl. Midi.is, ÍR og Hamar/Selfoss harma það mjög og vilja því koma til móts við stuðingsmenn liðanna með því að bjóða frítt á leikina á sunnudaginn. ÍR tekur á móti Þór frá Þorlákshöfn og Hamar/Selfoss fær Fjölni í heimsókn. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15