22 feb. 2007Mikið fjör var í leikjum kvöldsins, miklar sveiflur sem skýrist af þeirri spennu sem er og hversu mikið er í húfi fyrir öll lið. Í Vesturbænum náðu heimamenn að leggja nýbaka Lýsingarbikarmeistara ÍR 89 - 81. Í Grafarvogi var háspenna lífshætta og þurfti að framlengja til að fá úrslit. Svo fór að Fjölnir vann Þór Þorlákshöfn 102 - 91 Í Grindavík var mikið skorað í leik þar sem jafnt var allan leikinn og liðin skiptust á að leiða. Grindavík hafði betur á endanum [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002450_18_5[v-]109 - 99[slod-] Í Stykkishólmi höfðu Snæfellingar betur gegn Hamri/Selfoss 83 - 61. Í Iceland Express deild kvenna unnu Haukastúlkur lið Breiðabliks 116 - 74 í leik sem var sögulegur fyrir það að í fyrsta sinn dæmdu tvær konur saman leik. Tölfræði úr leikjunum kemur fljótlega. Jón Arnór lék með liði sínu Roma í Meistaradeildinni í kvöld gegn Maccabi Tel Aviv. Þetta var svakalega jafn leikur sem endaði með sigri gestanna [v+]http://www.euroleague.net/main/results/showgame?gamecode=178[v-]69:71[slod-] Jón lék í 14 mínútur og skoraði 4 stig. Hann skoraði m.a. úr tveim vítum á lokasekúndum leiksins. Hægt er að lesa um þennan leik og aðra á síðu Meistaradeildarinnar [v+]http://www.euroleague.net/[v-]hér[slod-]