22 feb. 2007Fyrr í vetur gerðist það að kona dæmdi í fyrsta skipti leik í efstu deild í körfubolta á Íslandi. Það var þegar Indíana Sólveig Marquez dæmdi leik ÍS og Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna. Eftir það hefur Indíana dæmt fleiri leiki í þeirri deild og einnig hefur Georgía Olga Kristiansen dæmt nokkra leiki þar. Í kvöld mun það svo gerast að þær tvær munu dæma saman leik Hauka og Breiðabliks í Iceland Express deild kvenna og mun þetta vera í fyrsta skipti sem tvær konur með dómarapróf dæma saman körfuboltaleik á Íslandi.