19 feb. 2007Það hefur ekki munað svona litlu á milli liðanna í báðum bikarúrslitaleikjunum síðan árið 1985 og það má því segja að laugardagurinn hafi verið mest spennandi bikarúrslitadagur í 22 ár. ÍR vann Hamar/Selfoss með tveimur stigum, 83-81, í karlaleiknum og Haukar unnu Keflavík með einu stigi, 78-77, í kvennaleiknum. Það munaði því aðeins samtals þremur stigum í báðum leikjum til samans. Báðir leikirnir gátu farið í framlengingu og þá sérstaklega kvennaleikurinn því Keflavík fékk tvö víti til þess að jafna leikinn þegar ein sekúnda var eftir. Fyrir 22 árum unnu Haukar tveggja stiga sigur á KR í karlaleiknum, 73-71 og ÍS vann ÍR með einu stigi, 25-24, í kvennaleiknum. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir mest spennandi bikarúrslitadaga síðan að báðir meistaraflokkarnir fóru að spila sína úrslitaleiki á sama degi í Laugardalshöllinni. Mest spennandi bikardagarnir í Höllinni: 18. febrúar 2007 - 3 stig Karlar: Hamar/Selfoss 81-83 ÍR Konur: Keflavík 77-78 Haukar 28. mars 1985 - 3 stig Karlar: Haukar 73-71 KR Konur: ÍS 25-24 ÍR 29. janúar 1994 - 6 stig Karlar: Keflavík 100-97 Njarðvík Konur: Keflavík 56-53 Grindavík 9. febrúar 2002 - 7 stig Karlar: Njarðvík 86-79 KR Konur: KR 68-68 Njarðvík, framlengt (81-74) 30. mars 1989 - 9 stig Karlar: Njarðvík 71-71 ÍR, framlengt (78-77) Konur: Keflavík 78-69 ÍR 25. mars 1982 - 9 stig Karlar: Fram 68-66 KR Konur: KR 58-51 ÍS 1. febrúar 1997 - 11 stig Karlar: Keflavík 77-66 KR Konur: Keflavík 59-59 KR, framlengt (66-63) 24. mars 1983 - 12 stig Karlar: Valur 78-75 ÍR Konur: KR 56-47 Njarðvík 5. mars 1981 - 12 stig Karlar: Valur 90-84 Njarðvík Konur: ÍS 37-31 ÍR