18 feb. 2007Stjörnuleikur NBA fer fram í Las Vegas í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 1:30 að íslenskum tíma í nótt og verður sýndur á Sýn. Leikurinn er hápunkturinn á stjörnuhelginni og frábær skemmtun fyrir körfuboltaaðdáendur víðs vegar um heiminn. Í gær fór fram þriggja stiga skotkeppnin og troðslukeppni NBA deildarinnar. Jason Kapono, leikmaður Miami Heat, sigraði þriggja stiga keppnina og Gerald Green, leikmaður Boston Celtics sigraði troðslukeppnina. Hægt er að lesa meira um stjörnuhelgina á [v+]http://www.nba.com/allstar2007/index.html[v-]nba.com[slod-]