17 feb. 2007ÍR-ingar urðu bikarmeistarar í annað skipti eftir [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002465/24650501.htm[v-]83-81[slod-] sigur á Hamri/Selfoss í úrslitaleik Lýsingarbikar karla í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn var jafn og æsispennandi en góð sóknarnýting Breiðhyltinga vóg upp að þeir töpuðu fráköstunum og réðu illa við George Byrd sem var með 23 stig, 14 fráköst og 8 stoðsendingar. Nate Brown var hetja ÍR-liðsins í lokaleikhlutanum en hann skoraði þá 12 af 17 stigum sínum auk þess að stela þremur boltum af HS-mönnum. Sveinbjörn Claessen skoraði eina af mikilvægustu körfum leiksins, þegar hann tók af skarið, keyrði upp að körfu og kom ÍR í 80-75 þegar 23 sekúndur voru eftir. Friðrik Hreinsson skoraði þriggja stiga körfu fyrir Hamar/Selfoss þegar 18 sekúndur voru eftir en Nate Brown nýtt bæði vítin sín og kom ÍR í 82-78 þegar tæpar 12 sekúndur voru til leiksloka. ÍR-ingar sendu Marvin Valdimarsson á vítalínuna þegar 9 sekúndur voru eftir en hann nýtti aðeins annað vítið og HS-menn höfðu þar með klikkað á 12 vítum í leiknum. Staðan var því 82-79 þegar Ólafur Jónas Sigurðsson fór á vítalínuna fyrir ÍR þegar átta sekúndur voru eftir á klukkunni. Ólafur nýtti annað vítið og um leið þurftu Hamars/Selfoss menn tvær sóknir til þess að jafna leikinn. Lárus Jónsson minnkaði muninn í 83-31 þegar 2 sekúndur voru eftir en leiktíminn rann síðan út áður en HS-mönnum tókst að brjóta og ÍR-ingar fögnuðu sigri. Taktík ÍR-inga að brjóta á Georga Byrd og senda hann á vítalínuna gekk upp því miðherjinn sterki klikkaði á 8 af 13 vítum sínum í leiknum og skoraði ekki körfu síðustu fimm mínúturnar í leiknum. Byrd var með 15 stig í þriðja leikhlutanum en skorti þol í lokaleikhlutann þar sem hann skoraði aðeins 4 stig. Byrd fiskaði alls 12 villur í leiknum en þær dreifðust á sjö menn og Breiðhyltingar hjálpuðust því við að halda aftur af hinum stóra og sterka Bandaríkjamanni. Fjórir leikmenn ÍR-liðsins voru einnig með fyrir sex árum þegar félagið varð bikarmeistari í fyrsta sinn þá einnig eftir að hafa unnið Hamar í úrslitaleik. Þetta voru þeir Eiríkur Önundarson, Hreggviður Magnússon, Ólafur Jónas Sigurðsson og Steinar Arason. Eiríkur sem skoraði 13 stig í kvöld, var með 18 stig og 11 stoðsendingar í úrslitaleiknum fyrir sex árum. HS-mennirnir Lárus Jónsson og Svavar Páll Pálsson þurftu hinsvegar öðru sinni að sætta sig við bikarsilfur eftir tap fyrir ÍR. Hreggviður Magnússon spilaði aftur með ÍR-ingum eftir meiðslin sem hann hlaut í undanúrslitaleiknum gegn Grindavík og var með 9 stig á þeim 19 mínútum sem hann spilaði. ÍR-liðið vann þessar 19 mínútur með tólf stigum, 49-37, en tapaði hinsvegar með 10 stigum, 34-44, þegar Hreggviður sat á bekknum. Mestu munaði um þær 7 mínútur sem hann spilaði í fyrri hálfleik en þær unnu ÍR-ingar 17-6. Nate Brown var allt í öllu í fjórða leikhlutanum en hann kom þá að fimm af sjö körfum ÍR-liðins. Brown skoraði 12 af 17 stigum sínum í leiknum í lokaleikhlutanum, nýtti þá öll þrjú skotin sín, stal 3 boltum og gaf 2 stoðsendingar. Vítin sem hann setti niður komu ÍR fjórum stigum yfir þegar tæpar 12 sekúndur voru eftir og fóru því langleiðina með því að tryggja sigurinn. Nate Brown hafði aðeins nýtt 1 af 6 fyrstu skotum sínum í leiknum en gerði sitt þegar mest á reyndi á æsispennandi lokasekúndum. Hamar/Selfoss tókst ekki að enda bið Landsbyggðarfélaga eftir bikarnum en engu liði fyrir utan höfuðborgarsvæðið og suðurnesin hefur tekist að vinna bikarúrslitaleik í Höllinni. Átta stiga tap Hamars fyrir ÍR fyrir sex árum var besti árangur landsbyggðarliðs fyrir daginn í dag en töp Snæfells (1993 og 2003), ÍA (1996) og KFÍ (1998) eru öll meðal fimm stærstu tapa liða í bikarúrslitunum frá upphafi. ÍR-ingar eru aftur á móti eina Reykjavíkurliðið sem hefur unnið karlabikarinn síðustu sextán ár. Atkvæðamestir í leiknum: - ÍR - Nate Brown, 17 stig, 6 stoðsendingar, 3 stolnir Keih Vassell 14 stig, 6 fráköst, hitti út 6 af 8 skotum Eiríkur Önundarson 13 stig Ómar Sævarsson 10 stig á 17 mínútum, hitti úr 5 af 6 skotum Hreggviður Magnússon 9 stig Fannar Freyr Helgason 9 stig, 5 fráköst á 17 mínútum Sveinbjörn Claessen 8 stig, 7 stoðsendingar - Hamar/Selfoss - George Byrd 24 stig, 15 fráköst, 8 stoðsendingar Friðrik Hreinsson 15 stig Bojan Bojovic 15 stig, 6 fráköst, 3 stoðsendingar Lárus Jónsson 9 stig, 5 stoðsendingar Marvin Valdimarsson 9 stig, 7 fráköst Svavar Páll Pálsson 9 stig, 5 fráköst