16 feb. 2007Nú er rétt rúmur sólarhringur í úrslitaleik Hauka og Keflavíkur í Lýsingarbikar kvenna. Dómarar í leik Hauka og Keflavíkur verða þeir Björgvin Rúnarsson og Erlingur Snær Erlingsson. Eftirlitsdómari verður Gunnar Freyr Steinsson. Heiðursgestir liðanna verða Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar og frú fyrir Keflavík. Fyrir Hauka verða þeir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Jónas Tryggvason, framkvæmdastjóri sölusviðs Actavis í Mið- og Austur Evrópu og Asíu.