15 feb. 2007Síðastliðinn sunnudag fór fram á Sauðárkróki leikur Tindastóls og Skallagríms í Iceland Express deild karla. Þessi leikur var Iceland Express leikur umferðarinnar og lauk honum með sigri Skallagríms [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002450_17_6[v-]94-110[slod-] eftir skemmtilegan leik. Fjórir áhorfendur voru dregnir út til þess að skjóta á körfu og keppa um 2 miða sem að Iceland Express gaf í tengslum við leikinn. Sigþór Gunnarsson, leikmaður með 10. flokki Tindastóls, sigraði í bráðabana og tryggði sér þar með ferð fyrir 2 á einhvern af áfangastöðum Iceland Express.