15 feb. 2007Eins og komið hefur fram verður þjálfarafundur laugardaginn 17. febrúar í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal. Fundurinn verður í E sal á 2.hæð. Fyrirlesari á fundinum verður Geof Kotila þjálfari Snæfells. Dagskrá fundarins verður eftirfarandi: 10-10.20 Kynning 10.20-11 Varnarleikur og hugmyndafræði varnarleiks 11-11.15 Viðhorf leikmanna til varnarleiks 11.30-12.15 Almennar umræður, þjálfarar geta spurt m.a. 12.15-12.45 Körfubolti í Evrópu. Hvar stöndum við? 12.45 Formlegri dagskrá lokið en hægt að vera áfram og spjalla ef þjálfarar vilja það. Það kostar 500 krónur á fundinn.