8 feb. 2007Laugardaginn 24. febrúar næstkomandi verður hið árvissa öldungamót Þórsara haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri. Allir leikir mótsins fara fram á einum stað og verða tveir frambærilegir dómarar á hverjum leik. Þetta í bland við góða góðar móttökur og góða félaga er uppskrift að frábæru körfuknattleiksmóti! Boðið upp á kvennariðil sem og 30-40 ára karlariðil og riðil fyrir karla sem eru 40+ ef næg lið fást. Í kvennaliðunum mega konur vera frá 27 ára aldri, svo framarlega að þær séu ekki leikmenn með liðum sem eru í Íslandsmóti. Leiktími er 2 x 16 mínútur að lengd (klukka ekki stoppuð). Í lok móts verða veittar viðurkenningar auk þess sem boðið verður upp á akureyskar flatbökur/pítsur og gos. Tekið er við skráningum í mótið í [p+]bh@unak.is[p-]bh@unak.is[slod-] og í eftirfarandi símum 694-4970 (Bjarni) og 892-3166 (Eiríkur). Skráningargjald er einungis 2500 krónur á mann. Endilega skráið ykkur sem fyrst. Við hlökkum til að sjá sem flest á vellinum. Nánari upplýsingar um mótið veitir Jóhann Rúnar Sigurðsson [p+]ninnybj@simnet.is[p-]ninnybj@simnet.is[slod-]