8 feb. 2007Í kvöld fimmtudag hefst 16.umferð Iceland Express deildar karla með fjórum leikjum. Það er óhætt að segja að spennan sé að magnast og nú þegar liðin eiga eftir 7 leiki af deildarkeppninni er gersamlega ómögulegt að spá til um hvar liðin muni enda þegar upp er staðið. Iceland Express deildin hefur verið frábær í vetur og ég fullyrði að fjörið er bara rétt að byrja. Það á mikið eftir að ganga á áður en yfir lýkur. Í Stykkishólmi taka heimamenn á móti ÍR. Snæfell vann fyrri leikinn í Seljaskóla[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24500503.htm[v-] 61:74[slod-] Í Keflavík mætast Keflavík og Þór frá Þorlákshöfn. Keflvíkingar unnu mjög öruggan sigur í Þorlákshöfn[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24500502.htm[v-] 68:107[slod-] Á Sauðárkróki taka Tindastólsmenn á móti Hamri/Selfoss. Hamar/Selfoss unnu fyrri leikinn í hörkuleik[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24500505.htm[v-] 82:78[slod-] Eins og áður hefur komið fram fá öll liðin í Iceland Express deildinni 1 leik sem er svokallaður Iceland Express leikur umferðarinnar og nú er komið að[v+]http://www.umfg.is/[v-] Grindavík[slod-] að fá slíkan leik. [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-] Iceland Express[slod-] styrkir leikinn sérstaklega með því að gefa gjafabréf sem gildir fyrir 2 á einhvern af fjölmörgum áfangastöðum þeirra. Í Grindavík verður sannkallaður suðurnesjaslagur þegar nágrannarnir úr Njarðvík koma í heimsókn. Njarðvík unnu fyrri leikinn[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002450/24500504.htm[v-] 76:73[slod-] í fjörugum leik. Allir leikir hefjast klukkan 19:15