
2 feb. 2007Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið tilnefningu frá FIBA Europe til að dæma leik í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna. Um er að ræða seinni leik rússneska liðsins Nadezhda og franska liðsins ESB Lille Metropole, en fyrri leikurinn fór fram í gærkvöld í Rússlandi, þar sem heimastúlkur höfðu sigur 72-69. Seinni leikurinn fer fram í Frakklandi 8. febrúar næstkomandi og er Sigmundur aðaldómari leiksins, en meðdómari hans er Vincent Delestree frá Belgíu. Eftirlitsmaður er Victor Maas frá Spáni.


