2 feb. 2007Mánudaginn 5.febrúar verður dregið í 16-liða úrslit í Meistaradeild Evrópu. Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik er með stærstu deildum í heimi. Það er einungis Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu sem er stærri af þeim sem eru í Evrópu. Áhugi er gríðarlega mikill fyrir þessari deild alls staðar í álfunni en því miður sjáum við ekki mikið frá henni hér á landi. Þeir sem eru með gervihnattadiska ættu að ná að sjá leiki beint. Á Eurosports 2 er hægt að sjá beint frá ULEB Cup en vonandi fáum við tækifæri á því í framtíðinni að sjá meira frá Evrópskum körfubolta. Hann er nefnilega miklu betri og vinsælli en margur landinn heldur. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um Meistaradeildina[v+]http://www.euroleague.net/[v-] hér[slod-]