
2 feb. 2007Dómstóll KKÍ hefur úrskurðað í máli ÍBV gegn Drangi. ÍBV kærði Drang fyrir að hafa notað ólöglegan leikmann í leik sem að fram fór 20. janúar síðastliðinn. Dómsorð eru eftirfarandi: Ungmennafélagið Drangur telst hafa tapað leik gegn ÍBV körfuknattleiksfélagi í II. deild karla, riðli A-5, sem fram fór 20. janúar 2007, með stigatölunni 0-20.


