14 okt. 2000Liðin tvö sem spáð var falli fyrir tímabilið, Skallagrímur og KFÍ, mættust í Borgarnesi í gær og það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi. Warren Peebles var stigahæstur hjá Skallagrími með 41 stig, en auk þess gaf hann átta stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum. Næstur kom Sigmar Páll Egilsson með 16 stig. Dwayne Fontana fór mikinn fyrir KFÍ, skoraði 48 stig (sem er met í vetur) auk þess að vera með 15 fráköst og fjögur varin skot. Sveinn Blöndal var einnig mjög sterkur í leiknum, skoraði 27 stig, tók átta fráköst og varði tvö skot.
Skallagrímur vann Vesturlandsslaginn