10 ágú. 2000Kvennalandslið Íslands tapaði fyrir því Finnska í sínum fyrsta leik á Norðurlandamótinu sem fram fer í Bergen. Eftir að hafa aðeins verið átta stigum undir í hálfleik (26-34) hrundi leikur íslenska liðsins í seinni hálfleik, sem endaði 18-46 fyrir Finnum og lokatölur því 44-80 Finnlandi í vil. Stigahæst í liði Íslands var Erla Þorsteinsdóttir með 12 stig og næstar komu Signý Hermannsdóttir, Gréta María Grétarsdóttir og Alda Leif Jónsdóttir með sex stig hver. Signý tók að auki 10 fráköst og varði fjögur skot. Úrslit leiksins gefa kannski ekki rétta mynd af getu íslenska liðsins, þar sem við ofurefli var að etja, en Finnland og Svíþjóð eru talin tefla fram sterkustu liðunum. Ísland mætir Svíþjóð í næsta leik sem fer fram á morgun.
Stórt tap gegn Finnum