6 mar. 2024Nú styttist í VÍS Bikarhátíðina þegar úrslit fara fram í öllum flokkum auk undanúrslita meistaraflokka dagana 19.-24. mars. Leikið verður í Laugardalshöllinni í VÍS bikar umgjörð og má búast við spennu og fjöri að venju. Miðasala félaganna á meistaraflokksleiki er hafin hjá félögunum sem taka þátt auk miðasölu á þeirra vegum á STUBB. (www.stubb.is/category/basketball).

Allar nánari upplýsingar má sjá hérna upplýsingasíðu fyrir VÍS Bikarinn á kki.is


LEIKJAPLANIÐ · VÍS bikarinn 2024
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
19. mars þri. | Undanúrslit karla
   17:15   Álftanes - Tindastóll (Beint á RÚV2)
    20:00   Keflavík - Stjarnan (Beint á RÚV2)
 
  20. mars mið. | Undanúrslit kvenna

     17:15   Keflavík - Njarðvík (Beint á RÚV2)
     20:00   Þór Ak. - Grindavík  (Beint á RÚV2)
       
21. mars fim. | Yngri flokkar
     17:30     9. fl. drengja · Stjarnan - KR
     19:45   11. fl. drengja · Stjarnan/KFG - Breiðablik


22. mars fös. | Yngri flokkar
     17:30   12. fl. karla · KR - ÍR (Beint á RÚV2)
     20:00   12. fl. kvenna · Aþena - Þór Þ./Hamar (Beint RÚV2)
       
23. mars lau. | Úrslita leikir · meistaraflokkar 
     16:00   Bikarúrslit karla · Úrslitaleikur (ÁLF/TIN vs. KEF/STJ) (Beint á RÚV)
     19:00   Bikarúrslit kvenna · Úrslitaleikur (KEF/NJA vs. ÞÓRAK/GRI) (Beint á RÚV)
       
24. mars sun. | Yngri flokkar
     12:00     9. fl. stúlkna · Stjarnan - Fjölnir
     14:15   10. fl.drengja · ÍR - Stjarnan
     16:45   10. fl. stúlkna · KR - Keflavík

Beinar útsendingar frá öllum leikjum helgarinnar!
RÚV, RÚV2 í umsjón Stjörnunnar TV, sýna beint frá öllum leikjunum í VÍS bikarnum. Það er undanúrslit meistaraflokka þriðjudag og miðvikudag og úrslitaleikina laugardag á RÚV og RÚV2 sem og alla úrslitaleiki yngri flokka sem fara fram fimmtudag, föstudag og sunnudag í streymi á Youtube-rás KKÍ.

Streymi ≠ Úrslit yngri flokka (Stjarnan TV í samstarfi við ruv.is)
Leikir yngri flokka, fyrir utan 12. fl. leikina á RÚV2, verða beint á Youtube-rás KKÍ: https://www.youtube.com/kkikarfa