Kynferðislegt áreiti og ofbeldi

Síðustu mánuði hefur orðið mikil og þörf umræða um ofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar. KKÍ tekur heilshugar undir þá yfirlýsingu sem ÍSÍ hefur sent frá sér í tengslum við þá umræðu og má sjá yfirlýsinguna í heild sinni hér að neðan. Ofbeldi verður ekki liðið! 

Siðareglur KKÍ

Allir starfsmenn KKÍ þar með taldir þjálfarar, dómarar, nefndafólk, stjórn og starfsfólk skrifstofu starfa eftir siðareglum sem KKÍ hefur sett sér. Öll íþróttafélög og deildir innan þeirra ættu að setja sér siðareglur og viðurlög við brot á þeim. 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

ÍSÍ hefur uppfært allt efni sitt í tengslum við forvarnir og fræðslu gegn kynferðislegu áreiti og ofbeldi í íþróttum. 

Hér á síðu ÍSÍ má finna mikið af fræðsluefni um þennan málaflokk. Við hvetjum alla til þess að kynna sér þetta efni vel. 

ÍSÍ sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið af #MeToo umræðunni undir nafninu: Ofbeldi verður ekki liðið.

Yfirlýsing ÍSÍ;
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) harmar mjög að einstaklingar innan vébanda þess hafi þurft að þola ofbeldi í tengslum við íþróttastarf. ÍSÍ fordæmir með öllu allt ofbeldi í starfsemi íþróttahreyfingarinnar enda er slík hegðun óásættanleg og ólíðandi.

Umræðan sem fram hefur farið um allan heim undir merkinu #metoo hefur beint athyglinni að víðfeðmu ofbeldi gagnvart konum um allan heim og þá oft í krafti valds eða stöðu þess sem því beitir. 
ÍSÍ fagnar þeirri umræðu sem fylgt hefur #metoo herferðinni og þakkar þeim einstaklingum sem þar hafa komið fram með frásagnir sínar fyrir frumkvæðið og hugrekkið sem þeir hafa sýnt, með því að skýra frá þessum alvarlegu málum og vekja upp nauðsynlega umræðu um vandann. ÍSÍ er nú að leita leiða til að tryggja þeim sem orðið hafa fyrir alvarlegu ofbeldi í tengslum við íþróttastarf faglega aðstoð.

Það er og hefur verið markmið íþróttahreyfingarinnar að tryggja öryggi, jafnrétti og jafnræði þeirra sem iðka og starfa innan íþróttahreyfingarinnar. Þau skilaboð sem fram hafa komið með frásögnum íslenskra kvenna um ofbeldi innan hreyfingarinnar á Íslandi hafa sýnt að ástæða er til að gera betur.

Íþróttahreyfingin mun ekki sitja aðgerðarlaus hjá varðandi þann vanda sem birst hefur gegnum #metoo herferðina og er þegar hafin vinna við að móta aðgerðir sem gagnast geta hreyfingunni í baráttunni gegn ofbeldi. 
Skilaboðin eru einföld: Ofbeldi verður ekki liðið!

KKÍ hvetur aðildarfélög sín til þess að setja sig í samband við ÍSÍ hafi það áhuga á frekari fræðslu um þetta málefni.  

 

Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Bjarkarhlíð býður upp á ráðgjöf og upplýsingar fyrir fólk sem hefur verið beitt ofbeldi. Hjá Bjarkarhlíð er unnið með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum. Öll þjónusta er undir sama þaki með það að marki að auðvelda þolendum að leita aðstoðar. Hægt að óska eftir viðtalstíma með því að senda póst á netfangið bjarkarhlid@bjarkarhlid.is. Öll sú þjónusta er endurgjaldslaus og nánari upplýsingar má finna hér. 


O
fbeldið verður ekki liðið! 

 

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira