5 mar. 2005Fjölnismenn vörðu í dag bikarmeistaratitil sinn í unglingaflokki karla með 9 stiga sigri á KR, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002108/21080401.htm[v-]80-71[slod-], í síðasta bikarúrslitaleik dagsins en bikarúrslit yngri flokkanna fara nú fram í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Þetta er annað árið í röð sem Fjölnir vinnur unglingaflokk karla en liðið vann Grindavík [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001892/18920301.htm[v-]75-84[slod-] í úrslitaleiknum í fyrra. KR-ingar höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik og leiddu með 6 stigum í hálfleik, 27-33, en í heimamenn tóku völdin í seinni hálfleik, voru komnir 2 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 52-50, og unnu síðan fjórða leikhlutann með sjö stigum, 28-21. Pálmar Ragnarsson hjá Fjölni var valinn maður leiksins en hann náði þrefaldri tvennu í leiknum, skoraði 20 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Magnús Pálsson var stigahæstur hjá Fjölni með 24 stig, Brynjar Þór Kristófersson bætti við 15 stigum, þar af 8 þeirra þegar Fjölnismenn náðu undirtökunum í fjórða leikhluta. Yngri bróðir Pálmars, Árni, var síðan með 12 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar og báðir vörðu þeir bræður 3 skot. Brynjar Þór Björnsson var með 21 stig í liði KR, Grétar Örn Guðmundsson skoraði 14 stig, tók 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar, Darri Hilmarsson var með 14 stig og 10 fráköst og þá skoraði Jón Hrafn Baldvinsson 11 stig auk þess að taka 7 fráköst.