6 maí 2024

Grindavík varð meistari 2. deildar 12. flokks kvenna á sunnudag með sigri á Þór Ak. í úrslitaleik á Meistaravöllum. Leikurinn var lengst af jafn og Grindavík tryggði sér sigurinn með körfu 17 sekúndum fyrir leikslok.

Elín Bjarnadóttir var valin maður leiksins, en hún skilaði 23 stigum, 8 fráköstum, 4 stoðsendingum og 6 stolnum boltum.

Til hamingju Grindavík!