Ár 2007, miðvikudaginn 14. mars er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins. Fyrir er tekið: Mál nr. 2/2007 Hvíti riddarinn gegn Ungmennafélagi Grindavíkur Í málinu er kveðinn upp svofelldur DÓMUR I Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 6. febrúar sl. og gögn málsins send formanni dómsins með símbréfi sama dag. Kærandi er körfuknattleiksdeild Hvíta riddarans, Flókagötu 6, Reykjavík. (heimilisfang formanns) Kærði er körfuknattleiksdeild Ungmennafélags Grindavíkur, Grindavík. Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta meðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ. Dómkröfur Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik milli aðila máls þessa í II. deild karla, riðill A-2, sem fram fór 3. febrúar sl. Kærði gerir ekki kröfur í málinu. Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. útprentun úr gagnagrunni KKÍ um leikjafjölda leikmanna kærða með A liði kærða. Nr. 3 skýrsla leiksins. II Dómari málsins hlutaðist til um að starfsmenn skrifstofu KKÍ gæfu kærða frest til að til að tjá sig um málið en það hefur hann ekki gert. Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið Sigurður Sigurbjörnsson og Ólafur Ólafsson. Kærða hafi verið óheimilt að nota þessa leikmenn í umræddum leik þar sem þeir hafi á þessum tíma báðir verið meðal sjö leikjahæstu leikmanna A-liðs kærða í Icelandexpressdeildinni. Í þessu sambandi vísar kærði til 22. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót Telur kærandi að lið kærða hafi því verið ólöglega skipað í leiknum. III Niðurstaða Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæð 8. gr. laga um dómstól KKÍ. Í nefndri 22. gr. um körfuknattleiksmót kemur fram að þegar félag sendir B-lið til keppni þá sé því óheimilt að nota sjö leikjahæstu leikmenn A-liðs hverju sinni. Jafnframt segir í greininni að þegar einn eða fleiri leikmenn séu jafnir í sjöunda sæti sé óheimilt að nota einn þeirra. Í málinu hefur verið lögð fram útprentun um leikjafjölda leikmanna kærða með A-liði hans í Icelandexpressdeild karla. Þar má sjá að nefndir leikmenn voru báðir meðal sjö leikjahæstu leikmanna A-liðs kærða. Leikmönnunum var því, á þessum tíma, óheimilt að leika með B-liði kærða og því óheimilt að taka þátt í umræddum leik. Ber því þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst kærði því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0. Kærði hefur ekki áður gerst sekur um brot á reglum KKÍ sem varðað geta sektum. Með hliðsjón af því og málavöxtum öllum þykir ekki ástæða til að dæma kærða til greiðslu sektar til KKÍ. Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan. Dómsuppsaga hefur dregist vegna veikinda dómarans. DÓMSORÐ Ungmennafélagið Grindavík telst hafa tapað leik gegn Hvíta riddaranum í II. deild karla, riðli A-2, sem fram fór 3. febrúar 2007 með stigatölunni 0-20. Halldór Halldórsson. Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.