21 mar. 2024

Stjarnan varð í dag VÍS bikarmeistari 11. flokks drengja eftir sigur á Breiðablik í úrslitaleik 106-79.

Björn Skúli Birnisson var valinn maður leiksins en hann skilaði 24 stigum, 4 fráköstum, 8 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.Tölfræði leiksins má nálgast hér.

Til hamingju Stjarnan/KFG!

Myndir: Bára Dröfn/karfan.is