20 mar. 2024VÍS bikarvikan heldur áfram í dag með undanúrslitum kvenna, en framundan er vika af spennandi og áhugaverðum leikjum. Það verða Njarðvík og Keflavík sem mætast í fyrri leik dagsins kl. 17:15 í Laugardalshöll. Klukkan 20:00 er svo undanúrslitaleikur Þórs Akureyri og Grindavík, en liðin sem vinna í dag mætast í bikarúrslitum kvenna kl. 19:00 laugardaginn 23. mars. Miðasala fer fram á stubbur.app og snjalltækjaappinu Stubbur.