6 sep. 2023

Opnað hefur verið fyrir skráningu í 2. deild kvenna og 3. deild karla fyrir keppnistímabilið 2023-2024. Skráning er opin til kl. 23:59 mánudaginn 18. september 2023. Mikilvægt er að allar skráningar skili sér á réttum tíma. Fyrirhugað er að keppni þessara deilda hefjist um miðjan október.

2. deild kvenna og 3. deild karla byggir á sama grunni, þar sem leiknir verða 8-12 leikir yfir keppnistímabilið heima og að heiman. Leikið verður frá miðjum október og fram til 28. apríl. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu KKÍ.