14 ágú. 2020

Á morgun laugardag og sunnudag, 15.-16. ágúst, fara Úrvalsbúðir KKÍ fram hjá drengjum og stúlkum sem fædd eru 2009-2008-2007. Ein æfingahelgi verður haldin í ár í Úrvalsbúðum í stað tveggja eins og venjulega.

Strákarnir æfa í íþróttahúsi Fjölnis í Dalhúsum í Grafarvogi og stelpurnar í Ólafssal Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Hægt er að lesa nánar um Úrvalsbúðirnar og framkvæmd þeirra hér fyrir neðan og á  www.kki.is/urvalsbudir.

KKÍ mun gera allt í sínu valdi til að tryggja að farið verði að fullu eftir sóttvarnarreglum sem í gildi eru (sjá nánar neðar um framkvæmd).

Æfingatímar verða eftirfarandi á hvorum stað:
leikmenn f. 2009 kl. 09.00 – 11.00  Æfing laugardag og sunnudag 
leikmenn f. 2008 kl. 11.30 – 13.30  Æfing laugardag og sunnudag 
leikmenn f. 2007 kl. 13.30 - 14.30  Fyrirlestur á laugardeginum
+
leikmenn f. 2007 kl. 14.30 – 16.30  Æfing laugardag og sunnudag


Fyrirkomulag:
1) Aðkoma iðkenda · Inngangur
Foreldrar eru beðnir um að skutla börnum sínum að inngangi íþróttahússins. Við viljum biðja foreldra að fara ekki úr bílum sínum nema nauðsyn beri til. Foreldrar mega ekki koma inn í íþróttahúsið. Tekið verður á móti öllum iðkendum af starfsmönnum KKÍ og þeim leiðbeint á réttan stað.

2) Iðkendur þurfa að koma klæddir til æfinga
Við viljum biðja iðkendur að koma í íþróttafötum tilbúin til æfinga. Körfuboltaskór og vatnsbrúsi skal vera í litlum poka sem er tekin með inn í íþróttasalinn. Þar klæða iðkendur sig í körfuboltaskóna. Ekki verður í boði að nota búningsklefa.

2) Aðkoma næstu æfingahópa
Iðkendur f. 2008 sem mæta í æfingatíma númer tvö, mæta í íþróttahúsið 10 mínútum fyrir ofangreindan tíma, mikilvægt er að koma ekki fyrr svo hópar mætist ekki.

Elsti hópurinn, iðkendur f. 2007, byrja á fundi í fundarsal og því nægur tími fyrir hóp 2 að klára æfinguna sína og yfirgefa húsið á meðan fundurinn fer fram hjá þeim elstu. Sama á við sunnudag, engin fundur er þá, en þá er aftur klukkutími milli æfingahópanna tveggja.

3) Lok æfinga  · Útgangur
Þegar æfingu lýkur fara iðkendur strax út úr íþróttahúsinu. 

4) Sótthreinsun bolta
Þjálfarar og starfsmenn KKÍ hreinsa bolta og áhöld milli æfinga hópana þriggja
(árg. 2009-2008-2007)

5) Þátttökugjald og greiðsla
Við viljum biðja foreldra að millifæra þátttökugjaldið á reikning KKÍ. Vegna sóttvarna og til að lágmarka umgang í íþróttahúsinu eru allir foreldrar eru beðnir um að ganga frá þátttökugjaldinu í heimabanka með millifærslu og kvittun í tölvupósti í síðasta lagi föstudaginn 14. ágúst.

Aðrar aðgerðir og leiðbeiningar sem notast verður við:
· Eingöngu þjálfurum, fulltrúm KKÍ og starfsfólki íþróttahússins sem og iðkendum sem fæddir eru 2004 og síðar er heimilt að vera í inní íþróttasal
· Foreldrum er óheimilt að horfa á æfingarnar og að koma inn í íþróttahúsið
· Foreldrar eru beðnir um að koma börnum sínum á staðinn og sækja fyrir utan íþróttahúsið eins og kostur er
· Ekki verði notast við búningsklefa hvort sem er fyrir eða eftir æfingarnar og iðkendur koma klæddir
· Handspritt sé aðgengilegt á öllum stöðum þar sem iðkendur og þjálfarar eru
· Þjálfarar noti ekki sömu bolta til kennslu og iðkendur
· Iðkendur og þjálfarar útiloka alla snertingu sín á milli og haldi fjarlægð í 2 metrum eins og hægt er
· Iðkendur drekki eingöngu vökva úr sínum eigin drykkjarílátum. Hver og einn aðili ætti að vera með sitt eigið ílát (brúsa, flösku eða annað).

Nánar um framvæmdina:
Við minnum á að það er óheimilt fyrir foreldra að koma inn í íþróttahúsin og biðjum við þá að virða það vel og verða starfsmenn KKÍ á staðnum til að aðstoða alla iðkendur og leiðbeina. 

Að því sögðu er vert að minna á að það er ekki hægt að greiða á staðnum. Við biðjum um millifærslu í heimabanka í staðin. Merkt verður svo við alla sem mæta við komuna og sömuleiðis alla þá sem hafa greitt fyrirfram.

Mjög mikilvægt er að senda kvittun með nafni og fæðingarári barns á kki@kki.is svo hægt sé að merkja við greiðslur rétt. 

kt. 7101691369
rn. 121-26-1369
netfang: kki@kki.is
Þátttökugjald: 5.000 kr.