12 ágú. 2020

Mótanefnd hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að aflýsa deildarbikarnum sem hefjast átti 23. ágúst næstkomandi.
 
Heilbrigðisyfirvöld hafa opnað á þann möguleika að æfingar og keppni liðsíþrótta fullorðinna geti hafist að nýju, að undangegnum ströngum skilyrðum. Talsverð vinna hefur farið í að skoða hvaða skilyrði þurfa að gilda um opinbera keppni innanhúss á vegum sérsambands við núverandi aðstæður og en líklegt má telja að þær ráðstafanir sem grípa þurfi til myndu vera mjög íþyngjandi fyrir flest félög. Mótanefnd taldi ekki ástæðu til að leggja þær kvaðir á félögin í undirbúningsmóti fyrir keppnistímabilið, þar sem því hefði fylgt talsvert álag á sjálfboðaliða.
 
Mörgum spurningum er enn ósvarað, en unnið verður að því áfram að skýra þau mál og undirbúa mögulegt regluverk komi til þess að hefja þurfi keppni í Íslandsmóti við sambærilegar takmarkanir heilbrigðisyfirvalda og nú eru í gildi.
 
Áhersla KKÍ verður að móta þær reglur sem munu þurfa að gilda um æfingar körfuboltaliða innanhúss, svo öll lið geti hafið æfingar sem allra fyrst. Við munum kynna þær ráðstafanir fyrir aðildarfélögum KKÍ um leið og þær verða tilbúnar.